Kælan Mikla — Lítil Dýr

Слушать Kælan Mikla — Lítil Dýr

Текст Kælan Mikla — Lítil Dýr

Eins og lítil dýr í dimmu húsi
Við erum ung og villt
Við hittumst þar og leikum okkur
Skítug og spillt
Skiptumst á beittum orðum, beittum brögðum

Það má enginn vita hvað við gerðum, hvað við sögðum
Við bítum, klórum, breytum grimmd í losta
Gerum allt sem ekki má hvað sem það mun kosta
Okkur er sama hvað er rangt og sama hvað er bannað

Þetta eina skipti skiptir öllu máli
Ekkert annað
Annað
Leyfðu mér að vera vond
Voðalegur hamagangur á þér

Reittu upp reiðina, springdu og spurðu svo
Hvað amar að mín kæra meyja?
Tilfinninga, óróleika
Óstabíla þyngdarlögmál undirmeðvitundarinnar

Skapstyggi andskoti, ekki rífa svona fast í hárið á mér
Skildu mig svo eftir, þakta í blóði mínu
Hvíld eftir óróleikann, týnd í eigin hugsunum

Smátt og smátt fer fólk að forðast líkama minn
Tilfinninga, óróleika
Óstabíla þyngdarlögmál undirmeðvitundarinnar
Skapstyggi andskoti, ekki rífa svona fast í hárið á mér
Skildu mig svo eftir, þakta í blóði mínu