Kælan Mikla — Yndisdráttur

Слушать Kælan Mikla — Yndisdráttur

Текст Kælan Mikla — Yndisdráttur

Komdu nær minn kæri
Sleiktu mig með orðum þínum
Snertu mig með augum þínum
Grænum, daufum

Ég finn lykt líkama þíns
Leyfðu henni að fylla mig
Mig alla og meira og meira
Hvert ferðu

Þegar nóttin kemur?
Þú segir góða nótt við mig
Á kvöldin, þegar við erum saman
En þegar sólin skín
Ertu blindur

Ég veit að nóttin fer mer vel
En hugsar þú um mig?
Tek ég mikið pláss?
Tek ég mikið pláss?
Lúmskur ertu andskoti

Leikur að lyfjum
Og leyfir mér leikinn
Hratt en bítandi bítur gleðin mig
Gufar svo upp eins og reykur

Nei, nú er nóg komið minn kæri
Ég elskaði þig ekki
Þótt þú þættist þekkja mig
Þótt þú þættist elska mig

Eins og svo oft var ég að blekkja þig
Segðu mér sannleikann siðlausi skratti
Förum til fjandans og gerum það saman
Förum til fjandans og gerum það saman
Saman