Hatari — X

Слушать Hatari — X

Текст Hatari — X

X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið
Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla, mógúla og svikahrappa
Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það

– Þú horfðir á mig deyja

Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi
Gjaldþrot hins andlega mergsýgur framtakið og kæfir það í biturleika
Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna

– Þú horfðir á mig deyja

Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans
Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans
Hann krýpur á hnjánum. Holskeflan er gröf
Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna
Dreyri vellur – hann fellur í valinn

– Þú horfðir á mig deyja